Við bjóðum upp á matarpakka við öll hugsanleg tækifæri . Þú hringir og gefur upp gestafjöldann og við gerum þér tilboð í pakkann, verð eru mismunandi eftir hráefnisvali hverju sinni.
Við undirbúum veisluna fyrir þig og þú steikir/grillar/stingur kjötinu inn í ofn, hitar upp sósuna ef þarf og berð fram salatið.
Matarpakkarnir frá okkur henta við öll mannamót:
- Fyrir ættarmótið
- Fyrir stórveisluna
- Fyrir heimapartýið
- Fyrir vinnustaðapartýið
Alvöru rammíslenskur veislu- og grillmatur þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Eingöngu íslenskt sérvalið kjötmeti.
Útvegum annað sem til þarf á sanngjörnu verði, s.s. grillkol, kveikilög, álpappír, pappadiska, plasthnífapör og servíettur.
Smelltu hér til að sjá hvaða kjöt, meðlæti eða krakkafóður þú getur valið um